miðvikudagur, 19. apríl 2023

MB23 - 19. kafli - Hawaii - margt er skrýtið í hinni veröld

Borgarlína Hawaii- Road to nowhere - víti til varnaðar

Smá umræða um samgöngumál. Hér á Oahu hefur vægast sagt umdeild framkvæmd verið að flækjast yfir yfirvöldum og íbúum um langt árabil. Þetta er eins konar borgarlina, lestarteinar í gegnum Honolulu sem á að mynda samgöngulínu frá vesturhluta eyjarinnar og inn í borgina, alls 20 mílur eða um 32 km. Þetta er í raun einskonar "Skyline" sem margir þekkja frá ýmsum borgum heimsins.

Framkvæmdin hófst árið 2006 og átti að ljúka 2018, en það hafa sannarlega komið, ekki bara babb í bátinn, heldur fjöldinn allur af böbbum í fullt af bátum, ef það orð er þá til í fleirtölu. Framkvæmdastjórar komið og farið í gríð og erg og framkvæmdin fengið viðurnefnið "Road to Nowhere", þar sem hún endar í raun hvergi, eins og myndin hér að neðan sýnir.

Upphafleg kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 5 milljarðar dollara, en er nú 17 árum síðar, kominn í um 10 milljarða dollara eða 1.400 milljarða íslenskra króna. Til samanburðar má geta að heildarútgjöld íslenska ríkisins voru um 1.300 milljaðar á árinu 2022 og stefna í svipaða tölu í ár. Nú er rætt um að ljúka eigi verkinu árið 2031.

Það er nú þannig að skipulag við gerð lestasamgangna tekur langan tíma og framkvæmdin sömuleiðis og finnst mörgum hér um slóðir sem fjármunum hafi verið kastað út í hafsauga, sem er býsna stórt hér í Kyrrahafinu. 

Í þessu sambandi er rétt að hafa í huga að íbúar Honolulu eru um 350 þúsund talsins og því eru stærðarhlutföllin á vissan hátt samanburðarhæf við okkar hagkerfi. Hvort heldur er um að ræða borgarlínu á höfuðborgarsvæðinu eða lest til Keflavíkur, þá er gott að staldra við og skoða hvað dæmin sanna.



Skotárás í nágrenninu

Sem betur fer erum við Íslendingar að mestu laus við þann ófögnuð sem skotárásir eru. Kvöld eitt er við vorum stödd á hótelinu heyrum við um 10 skothvelli, skammt frá okkur.

Það kom svo í ljós að um var að ræða skotárás í kjölfar veðmála (hanaslagur) sem fór vægast sagt úr böndunum. Tveir létust og 3 særðust alvarlega. Skotmannsins er enn leitað hér í Honolulu.

Það er almennt mikið um útköll hjá lagana vörðum hér í borg, finnst okkur að minnsta kosti, en þetta er jú eitt af fylkjum Bandaríkjanna og því ekkert mikið öðruvísi en gerist og gengur á meginlandinu.

Golfsumarið nálgast

Danni, vallarstjóri GF, er að opna Selsvöll á næstunni og því er þörf á að skoða golfverkfæri fyrir sumarið.

Við fengum okkur því góðan göngutúr í golfverslun hér í borg, Roger Dunn, sem er staðsett um 3 km. fjarlægð frá hótelinu. Búðin er með mjög gott úrval, svo mjög að erfitt var að fara skipulega yfir allt það sem í boði er á þeim bænum.

Bóndinn "testaði" járnkylfur í gríð og erg, enda eldra settið orðið um 20 ára gamalt og því komin þörf á endurnýjun. Stefnan er svo að versla nýtt sett í Syracuse, áður en farið er í flug frá Boston í byrjun maí. Hvað verður fyrir valinu, Ping eða Callaway? Raunar sló karlinn lengra og beinna með Callaway Rogue ST - Tungsten kylfunum og því kannski ekkert flókið val. "Tungsten" er líka mjög harður málmur (Wolfram) sem m.a. er notaður í golfkylfur og líklega góður í löngu höggin!



Dægrastytting

Við höfum notað hin ýmsu hlaðvörp við þá krefjandi vinnu að liggja á hinum ýmsu stöðum, þ.m.t. baðströndum, sundlaugabekkjum og á flugvallargólfum.

Úrvalið er mikið og gott, en hvern hefði grunað að hljóðvarpið kæmi svo sterkt inn þegar allt virðist snúast um hið sjónræna. 

Frúin hlustar mest á "Einmitt" (Einar Bárðar), "Eftirmál" með Þórhildi, fyrrverandi barnapíunni okkar, og Nadine Yaghi, "Heitt á könnunni" með Ása, "Segðu mér" með Sigurlaugu J. og "Í ljósi sögunnar" með Veru Illugar. Bóndinn er einnig Verumaður, en hlustar líka "Nei, hættu nú alveg" með Villa Naglbít og félögum, "Frjálsar hendur" með Illuga J. (föður Veru) og "Draugar Fortíðar" þar sem m.a. Flosi Þorgeirsson sem bjó á yngri árum í Hólminum og Jói Gæ lék í hljómsveit með einhverju sinni, stýrir þáttunum í félagi við Baldur Ragnarsson.



Af gönguferðavögnum

Hér gengur fólk um götur, sem í sjálfu sér kemur ekki mjög á óvart, en þó eru margir sem ganga með hina ýmsu vagna sem líkjast mjög barnavögnum.

En engin eru börnin í vögnunum, heldur ferfætlingar, hin ýmsu hundakyn. Það er sem sagt svo að hér ganga fæstir með ungabörn í vögnunum heldur hundana sína. Stöku sinnum eru hundarnir teknir upp úr vögnunum og látnir gera stykkin sín eða annað tilheyrandi.

Að fara út að ganga með hundinn er tekið og framkvæmt mjög bókstaflega. Við höfum ekki ennþá geta skilið hvers vegna þetta er svo algengt, en sjálfsagt hafa aðrir skýringar á því. Furðulegt, að því er okkur finnst að minnsta kosti.



Sjálfrennireiðahávaði

Okkur sýnist sem nánast annar hver bíll á götunum sé af gerðinni Ford Mustang GT, en þó í mismunandi litum, stundum jafnvel gulllitaðir.

Þessir bílar og reyndar önnur faratæki mörg eru þannig úr garði gerð að valda sem allra, allra mestum hávaða á götunum allan sólarhringinn, svona til að sýna öðrum fram á eitthvað ógurlega töff, eða eitthvað. 

Eða erum við kannski orðin um of miðaldra, hávaðaviðkæm og ófær um að átta okkur á því hvað er hipp og kúl. Hver fann annars upp "French tuck"? Var það ekki hann Tan France sem kom einhvern tímann í skálann hjá okkur og fékk sér Bönker, ostapizzuna góðu. Við ættum kannski að ráðfæra okkur við hann hvað er "Inn" eða "Out".




Í dag er stefnan sett á ströndina og á morgun verður haldið yfir á meginlandið.








Engin ummæli:

Skrifa ummæli

MB23 - 23. kafli - New York og Massachusetts

28. apríl - 9. maí Las Vegas - Syracuse Flugið frá Las Vegas var mjög þægilegt og gaman að fljúga yfir fjallgarðana í Colorado, snjór í fjöl...