Thailand kvatt
Þann 13. mars héldum við til Bangkok frá Sam Roi Yot og innrituðum okkur á lítið hostel við flugvöllinn. Sváfum í "Hello Kitty" rúmfötum og líkaði vel.
Mikil umferð var við hostelið, rútur, flugvélar, lestarferðir, bílar og auðvitað vespurnar góðu. Eyrnatapparnir komu sér vel.
Innrituðum okkur í flug, næsta dag, til Ha Noi, höfuðborgar Víetnam og tók flugið tæpar 2 klukkustundir. Lendingin var í hópi þeirra hörðustu og sama má segja um hemlunina, eitthvað verið að flýta sér.
Víetnam
Héldum til miðborgar í Hanoi og innrituðum okkur á hótelið. Nú var umferðin aftur komin "réttu megin" og við loksins að ferðast í Toyota Fortuner sem er mjög algengur jepplingur á þeim stöðum sem við höfum farið til.
Umferðin hér í borg er eiginlega ótrúleg, bíl- og vespuflauturnar notaðar óspart og allt virðist ekki vera beinlínis í mikilli röð og reglu. Gangbrautarljós eru meira notuð til viðmiðunar, því ekki dugar að arka af stað þegar sá græni kemur. Umferðin heldur bara áfram og aldrei er stoppað fyrir gangandi vegfarendum.
Eldri konurnar einfaldlega setja út aðra höndina á móti umferðinni og ganga svo einhvern veginn í gegnum þvöguna með allan vespuherinn í kringum sig.
Ef ykkur þykir Skeifan slæm dagana fyrir jól, þá uhhhh, nei. Þetta er eitthvað annað, alla daga.
Þann 15. mars var haldið af stað í ferð um Hanoi borgina til að skoða merkilega staði. Nafn borgarinnar þýðir borgin við árnar. Hún er umkring stórum vötnum og því leika þau stórt hlutverk í ásýnd hennar.
Tran Quoc Pagoda
Fyrst skoðuðum við Tran Quoc Pagoda sem er elsta búddahof borgarinnar og stendur á lítilli eyju við Vesturvatnið "West Lake". Byggt árið 548 og því orðið ansi gamalt. Það var síðan endurbyggt á 17. öld.
Munkarnir hafa aðsetur í hofinu og kenna almenningi um búddisma. Kvenkyns munkar hafast einnig við í hofinu, en aldrei í samneyti við karlkyns munkana, auðvitað.
Í hofinu eru þrjú líkneski, allt mæður. Ein táknar vatn, önnur fjöll og skóga og sú þriðja himininn. Fólk færir líkneskjunum mat ýmis konar, eins og tíðkast víða, og nú voru það epli og appelsínur, enda uppskerutíminn í gangi.
Temple of literature
Konungurinn, Lý Thai Tong, lét byggja hofið árið 1070 og innan þess, háskóla sem tók til starfa 1076. Skólinn starfaði langt fram eftir 15. öldinni.

Frá 1945 til 1954 eyðilögðu Frakkar, m.a. þessi hús sem hýstu háskólann og raunar fóru þeir ákaflega illa með víetnömsku þjóðina þegar þeir gerður tilraun til að yfirtaka landið með öllu. Þeir vildu alls ekki að íbúarnir leituðu sér menntunar, því þá væri erfitt að ná yfirtökum á landinu, ef þar væri menntað fólk. Því notuðu þeir m.a. grunnskóla sem fangelsi og komu fram af mikilli grimmd sem virðist ennþá greipt í þjóðarsál Víetnama.
Þarna lærðum við hvaða dýr eru verndarar þjóðarinnar, Það ku veraDrekinn (Vald), Fönix (Fegurð), Skjaldbakan (Langlífi og styrkur) og Einhyrningurinn (Gáfur og góðmennska).
Hádegisverðurinn og verðlagið
Í hádeginu var stoppað á veitingastað í Hanoi þar sem boðið var upp á hefðbundinn víetnamskan mat. Maturinn bragðaðist mjög vel og einnig eggjakaffið, sætt og bragðgott.
Það er svolítið erfitt að átta sig á verðlaginu hérna og allur hópurinn var í mestu vandræðum með öll núllin á seðlunum, sem eru allnokkur.
Sem dæmi má nefna að eggjakaffið kostaði 55.000 dong, sem jafngildir 330 kr. Til þess að eiga fyrir daglegum útgjöldum í mat og drykk fyrir tvo þá er gott að hafa um 500.000 dong í vasanum, sem sagt hálfa milljón. Það gera um 3.000 kr., já það er ódýrt að kaupa mat og drykk hér um slóðir, en lítur alls ekki út fyrir að vera svo.
Lacquer Art
Við heimsóttum myndlistargerð í borginni þar sem myndir eru málaðar á harðvið sem búið er að meðhöndla með sérstökum hætti (Lacquer panting). Efnið er fengið úr trjáplöntu og síðan sett á harðviðinn í mörgum umferðum þar sem lakkað er á milli umferða.
Notaðar eru skeljar og eggjaskurn við gerð myndanna. Það tekur nokkra mánuði að gera hverja mynd þar sem smáatriðin eru í fyrirrúmi og margar umferðir eru framkvæmdar.
Hægt er að leggja fram sérpantanir og eru brauðkaupsmyndir nokkuð vinsælar hjá fyrirtækinu, Thu Huong Lacquer Art.
Sjón er sögu ríkari!
Hin mörgu þjóðarbrot Víetnam
Í Víetnam eru 54 þjóðflokkar/þjóðarbrot. Þeirra stærstur er Kinh, telur um 85%. Íbúar Víetnam koma eðli máls frá nágrannalöndunum, Laos, Kína, Cambódíu og Thailandi.
Árið 1997 var opnað safn "Vietnam Museum of Ethnology" þar sem sérstaklega er fjallað um og varðveitt saga þessara ólíku þjóðarbrota, lífshættir þeirra og venjur.
Þarna er að finna ólíka húsgerð, báta og muni ýmiskonar sem lýsa vel hve ólík skilyrði eru hjá þessum íbúum sama lands.
Ho Chi Minh´s
Það var tilkomumikið að skoða hús og híbýli Ho Chi Minh, sem var fyrsti forseti Víetnam frá árinu 1951 til 1969. Hann var fæddur árið 1890 og var merkilegur í marga staði.
Ho Chi Minh er einkar hugleikinn Víetnömum þar sem hann var maður fólksins, látlaus og leiddi uppbyggingu landins í kjölfar hérnáms og voðaverka Frakka. Hann aðhylltist kommúnisma og taldi það réttu leiðina til að koma þjóð sinni fram á við.
Hann var mjög vel að sér og talaði 6 tungumál, þar af 4 reiprennandi.
Við skoðuðum fjölmörg hús í forsetahallargarðinum (Presidental Palace Garden) og eru áhrif franskrar byggingarlistar mjög sterk í húsgerðinni. Ho Chi Minh bjó í nokkrum þessara húsa, en aldrei í stóru höllinni þar sem hann gat hugsað sér það, eftir framkomu Frakka í garð þjóðarinnar.
Hann lét hvorki útbúa salerni í vistarverum sínum eða eldhús, heldur notaði hann almenningssalerni og snæddi með almenningi, töluvert langt frá húsakynnum sínum.
Hann átti 3 bíla, sem hann þó gat ekki ekið sjálfur til að byrja með, enda ekki með bílpróf. Tveir þeirra voru frá Sovétríkjunum og einn frá Frakklandi.
Á svæðinu, sem telur um 14 hektara, er líka að finna stórt neðanjarðarbyrgi sem notað var þegar loftárásir voru gerðar á Hanoi.
Hóa Ló fangelsið (Maison Central)Fangelsið var byggt af Frökkum árið 1886 þegar Víetnam var ennþá hluti af frönsku Indókína.
Frakkar tóku fjölda fólks til fanga þegar hernám þeirra stóð yfir og stunduðu miklar pyntingar og annan óþverraskap.
Árið 1954 voru meira en 2.000 manns í haldi í fangelsinu við ómanneskjulegar aðstæður og framkomu sem ennþá sitja fast í þjóðarsál Víetnama.
Húsakynnin eru mun minni nú en þá var, þar sem búið er að reisa háhýsi og annað húsnæði á svæðinu. Þó standa eftir nokkur hús sem breytt hefur verið í safn.
Reistur var 4 metra hár veggur umhverfis húsakynnin með glerbrotun efst á veggnum og rafmagsvírum þar fyrir ofan.
Hanoi Hilton
Árið 1964, þegar Víetnam stríðið stóð yfir, var fyrsti bandaríkjamaðurinn hneppur í fangelsið. Almennt var farið vel með þessa fanga og því fékk fangelsið þetta nafn "Hanoi Hilton".
Fangarnir fengu næga hreyfingu, mat, gott hreinlæti, afþreyingu, heilbrigðisþjónustu og fleira. Meðal þessara flugmanna var John McCain, sem síðar bauð sig fram til varaforseta Bandaríkjanna.
Þegar stríðinu lauk var föngunum sleppt og þeim fengnir minjagripir við brottförina. Bandaríkin aðstoðuðu síðar við uppbyggingu innviða landsins sem voru í lamasessi eftir stríðið.
Langur dagur að baki og hjúin uppgefin á sögulegum upplýsingum en þeim mun fróðari um sögu þjóðar sem aðeins hefur haft sjálsstæði án stríðsátaka í 40 ár. Gott að sjá hina hliðina ekki alltaf þann vestræna. Erum reyndar pínulítið hissa á að við virðumst reglulega lenda í myndartöku hjá asíubúum við erum víst eitthvað skrítinn.....
Takk fyrir uppfærsluna. Ekki hætta að vera "skrítin" 🙈 ástar & saknaðarkveðja
SvaraEyðaHihihi höldum okkar undarlegheitum :)
SvaraEyða