föstudagur, 17. mars 2023

MB23 - 7. kafli - Víetnam 2. hluti

Ha Long Bay

Eftir morgunmat fórum við af stað um kl. 8.00 frá hótelinu í Hanoi. Eftir okkur beið mjög vel útbúin rúta með lúxussætum og alles. Stefnan var sett á Ha Long Bay sem er á heimsminjaskrá UNESCO og er talið eitt af undrum veraldar, skráð árið 2011.

Í flóanum öllum er talið að fjöldi kletta sé um 2.000 talsins. Bergtegundin er "Limestone" sem hefur veðrast mikið til og hefur þannig búið til ýmis áhugaverð form. Ferlið hefur tekið langan tíma sem liðinn er frá upphafi klettanna, eða 500 milljónir ára. Áhrifin hafa bæði verið jarðfræðileg, af völdum sjávar og veðurfarsleg.

Flóinn er um 330 ferkílómetrar að stærð og er meðaldýpið aðeins um 10 til 15 metrar og eru bátarnir sem flytja áhugasama ferðamenn því flatbotna og minna í raun meira á fljótabáta, en hefðbundna báta og skip á sjó.

Ha Long, merkir "Dreki á leið niður til lendingar", en drekinn er fyrirferðamikill í þjóðsögum og þjóðtrú Víetnama. Sagan segir að drekinn ásamt afkomendum sínum liggi um flóann og verndi þjóðina fyrir hvers kyns árásum og áföllum.

Við komum á staðinn um kl. 12.00 og vorum komin út í bát, ca. 20 mín. síðar. Gríðarlegur fjöldi ferðmanna er á svæðinu dag hvern og árið 2022 er talið að tæplega 12 milljónir ferðamanna hafi sótt flóann heim.

Við fórum á litlum bát yfir í skipið þar sem káettur, matsal og annað var að finna um borð, á þremur hæðum. Skipið er byggt úr tré, en í dag er ekki heimilt að smíða slíka báta í Víetnam, heldur skulu þeir vera úr stáli eða öðru viðurkenndu efni.

Siglt var með hópinn sem leið lá úr höfn og inn í flóann. Við vorum alls 17 manns frá ýmsum löndum, en Frakkar virðast áberandi í ferðamannaflórunni í Víetnam, enda sterk tengsl í við Frakkland í landinu, sem skýrist að mestu leyti af stríðsbrölti þeirra frönsku, eins og áður var skýrt frá.

Eftir hádegisverð (5 rétta) var haldið inn á milli klettanna og á svæði þar sem gott var að varpa akkerum og fara í kajaksiglingu og koma við á einni af aðeins nokkrum náttúrulegu baðströndum á svæðinu og svamla í sjónum.

Sjórinn er grænleitur sem skýrist af tilvist þörunga sem þar svífa um. Ekki sést til botns, þó grunnt sé um allan flóann.

Við komu í skipið var komið "Happy Hour" sem flestir gestirnir nýttu sér nokkuð vel.

Boðið var upp á kennslu í vorrúllugerð þar sem ekta víetnamskar vorrúllur voru útbúnar og tók frúin virkan þátt í vorrúllugerðinni. Rúllurnar voru síðan eldaðar fyrir hópinn, síðar um kvöldið sem hluti af 7 rétta kvöldverði.

Hópurinn settist síðan á "sólþilfarið" og spjallaði saman fram á kvöld.

Vung Vieng fiskiþorpið

Næsta dag var ræs kl. 6.30 þar sem boðið var upp á Tai Chi leikfimi og kaffi og te. Að því loknu var haldið af stað í lítið fiskiþorp þar sem við fengum að kynnast lífsháttum þessa hverfandi menningarheims. Þarna eru hús á fljótandi tunnum og fiskibátar í grennd. 

Um 600 manns búa í 4 fiskiþorpum sem ennþá eru til staðar á svæðinu, en voru miklu mun fleiri áður fyrr.

Fiskimenn og konur veiða um 200 mismunandi fiskitegundir og 450 mismunandi tegundir af skelfisk og öðrum botndýrum.

Ekkert grunnvatn er í þorpunum og því þarf fólkið að reiða sig á ferskvatn úr landi, auk margra annarra nauðsynja.

Á svæðinu er einnig að finna ostrurækt þar sem aðaláherslan er á perlur af ýmsum gerðum, litum og stærðum. Langstærstur hlutinn af perlunum nýtast ekki í skartgripi, en þær perlur sem ekki uppfylla kröfur í skartgripagerð eru nýttar m.a. í snyrtivörur. Skeljarnar eru líka nýttar í skartgripi og í snyrtivörur ýmis konar.

Við komuna í þorpið bauðst okkur að fara í stutta ferð á litlum árabátum þar sem róið var í kringum klettana, frá þorpinu og yfir til perlugerðarinnar.

Eftir dögurð um borð, sem líka var rosalega margréttaður, var haldið til hafnar.

Við þurftum að bíða nokkuð eftir rútunni þar sem bílstjórinn hafði lent í laganna vörðum á leiðinni til okkar. Þessi rúta var ekki alveg af sömu gæðum og sú sem við fórum með daginn áður og allt yfirbragð í akstrinum svolítið annað. 

Umferðin hér í landi er ansi skrautleg, eins og áður hefur komið fram og ekki lagaðist það í þetta skiptið. 

Við komuna í tollhlið á leiðinni mættum við kássu af bílum af öllum stærðum og gerðum. Troðningurinn og ringlueiðin var fullkomin og langan tíma tók að krussa í gegnum þvöguna með tilheyrandi yfirálagi á bílflauturnar á svæðinu, skrautlegt í meira lagi.


Á morgun er flug til suðurs frá Hanoi til Danang og Hoi An sem er miðsvæðis í landinu.




 





Engin ummæli:

Skrifa ummæli

MB23 - 23. kafli - New York og Massachusetts

28. apríl - 9. maí Las Vegas - Syracuse Flugið frá Las Vegas var mjög þægilegt og gaman að fljúga yfir fjallgarðana í Colorado, snjór í fjöl...