föstudagur, 14. apríl 2023

MB23 - 17. kafli - Hawaii - Waikiki

 9. - 10. apríl

Eftir næturflug frá Tahiti var næsta stopp á eyjunni Oahu í Honululu á Hawaii. Flugið var mjög hressandi þar sem ókyrrð var töluverð með tilheyrandi ópum og svettum úr glösum hér og þar. Bóndinn var hins vegar með fullt glas af einhverjum amerískum gosdrykk, en tókst að halda öllu á sínum stað, líklega haldið á kaffibolla í veltingi einhvern tíma áður.

Frúin var mjög hrædd um að vera spurð um allt og ekkert í vegabréfaeftirlitinu í USA og var vel undirbúin. En strákurinn var bara hress og bauð okkur velkomin til Hawaii, ekkert ves.

Við komum upp á hótel í Waikiki hverfinu og lögðum okkur fram að hádegi. Næstu dagar fóru svo í að kanna svæðið og borgina, eins og klassískur ferðamaður gerir á þessum slóðum. Endurbótum á hótelinu er nánast lokið og lítur það mjög vel út með sínum sérstaka stíl.

Borgin er mjög lífleg, hávaðasöm á köflum og mikið um alls konar, eins og USA er von og vísa. Hér í borginni búa um 350 þúsund manns og mikið um háhýsi og líflegar baðstrandir.



11. apríl

Í dag heimsóttum við Pearl Harbor sem er auðvitað einstakur sögulegur staður þegar seinni heimstyrjöldin stóð yfir.

Japanir réðust á höfnina þann 7. desember 1941 með gífurlegu mannfalli og eignatjóni. Næsta dag, 8. desember lýstu Bandaríkjamenn auk annarra þjóða, yfir stríði á hendur Japönum.

Við skoðuðum það helsta sem er að finna í Perluhöfn, kafbátinn USS Bowfin, Orrustuskipið USS Missouri, flugvélasafnið og síðan flak USS Arizona sem sökk í árásinni og er í dag grafreitur þeirra er þar létu lífið.

Myndirnar tala sínu máli, en okkur fannst mjög áhugavert að skoða safnið, m.a. með tilliti til Víetnamstríðsins í ljósi þeirra sögustaða sem við skoðuðum í Víetnam. Svo virðist sem USA safnstjórnir vilji ekki mikið ræða það, enda lauk því stríði með ósigri USA og óhætt að segja að bandarískur almenningur hafi verið mjög á móti þeim stríðsrekstri.

Við tókum UBER "sístemið" í gagnið og líkar bara vel. Hún Terri skultaði okkur frá Pearl Harbor og tilbaka í Waikiki hverfið, þar sem hún reyndar býr sjálf. Hún var mjög ræðin, enda tók ferðin langan tíma í síðdegisumferðinni. Hún spurði, eins og svo margir aðrir, hvaða tungumál Íslendingar tali og var mjög hissa á því að við ættum okkar eigið tungumál.

Hún sagði okkur frá bestu veitingastöðunum og áhugaverðum stöðum á svæðinu, en líka frá syni sínum honum Kanoa Goo, sem við þekktum ekki. Hann ku hafa leikið í nokkrum þáttum, t.d. The Rookie og í kvikmyndum; Crazy Rich Asians, NCIS þáttum og í kvikmyndinni I was a simple man til að nefna eitthvað. Hún sagðist ekki hitta hann mikið, enda væri hann alltaf í Hollywood að vinna, en hann væri fáránlega ríkur......

"Blue fish taco" var eitt af því sem góða Uber konan sagði okkur frá og við skunduðum þangað eftir hamingjustund á hótelinu. Þetta tacó var svo gott að við vöknuðum með vatn í munni og staðráðin í að fara aftur mjög fljótlega, jafnvel í dag:) Bragðið af þessum bláa fisk er eins og glænýr þorskur á sterum, sprengdi upp braglaukana og bauð uppá veislu í munni. 










Engin ummæli:

Skrifa ummæli

MB23 - 23. kafli - New York og Massachusetts

28. apríl - 9. maí Las Vegas - Syracuse Flugið frá Las Vegas var mjög þægilegt og gaman að fljúga yfir fjallgarðana í Colorado, snjór í fjöl...