laugardagur, 18. mars 2023

MB23 - 8. kafli - Víetnam 3. hluti

Hanoi - Da Nang

Lögðum af stað frá hótelinu í Hanoi um kl. 8.30 og héldum út á flugvöll í innanlands flug. Áður en við lögðum í hann var okkur sagt að við hefðum verið uppfærð í "SkyBoss" sem við vissum þó ekki alveg hvað þýddi.

Við komuna á völlinn fórum við eins og venjulega í innritun, en þá áttum við alls ekki að vera þar heldur í "SkyBoss" innrituninni. Við vorum sem sagt uppfærð í "Saga Class", eins og Íslendingar margir þekkja. Flugfélagið er VietJet og er fyrsta "einkarekna" flugfélag landsins, hóf starfsemi 2007 og flug árið 2011.

Við versluðum smá og fórum svo upp á 3. hæð þar sem "Lounge" var að finna. Glæsilegur salur með þægilegum sætum og sófum, nuddstól, hlaðborð, drykkir og allt sem tilheyrir slíkum þægindum.

Flugið var stutt, frá Hanoi til Da Nang, ca. 1,5 klst. Borgin er 3ja stærsta borg Víetnam og þar búa um 1,5 milljónir manna. Til samanburðar búa um 8,5 milljónir í Hanoi, höfuðborg landsins.

Í fluginu vorum við svo með okkar eigin "buttler" og nóg pláss fyrir skankalanga ferðalanga.

Da Nang er staðsett í miðju Víetnam, við ströndina. Hún er mjög nýleg, aðeins um 20 ár eru síðan uppbygging hófst sem sérstaklega var ákveðin af stjórnvöldum. Fjölmargar brýr eru í borginni, enda er hún oftast kölluð, "Borg hina mörgu brúa".

Mjög snyrtilegt er í borginni og mengunin nánast engin miðað við Hanoi, en þar var tilfinningin líkari því sem við þekkjum þegar gosmengun leggur yfir borg og bæ.

Eftir að við hittum leiðsögumanninn okkar, hann Tai, fórum við á Cham safnið sem byggt var árið 1915 af Frökkum. Cham ættbálkurinn var hindúatrúar, en eftir innrás Norður-Víetnam var tekin upp búddatrú. 

          

Í safninu er að finna hluti sem Frakkar fundu í hindúahofum sem staðsett voru í fjöllunum og reistu safnið til að varðveita þessa muni. Listaverkin eru unnin úr sandsteini sem er, eins og nafnið bendir til, auðvelt að forma.

Marmarafjallið

Áfram var haldið í marmarafjallið, Marble Mountain, þar sem finna má nokkra hella með búddahofum (Pagoda) og mjög fallegum, stórum líkneskjum. Þar er líka mjög gott útsýni yfir borgina og nágrenni.
 
Við gengum upp fjallið, sem var ansi bratt, og þrepin há. Það er vegna þess að alltaf skal gengið rólega til að sýna búdda tilhlýðilega virðingu og ofreyna sig ekki um of.

Líkneskin eru sum hver mjög stór og tilkomumikið að koma inn í þessa hella. Þarna voru líka leðurblökur sem flugu fyrir ofan okkur, en flestar voru bara að hanga.


  




Við komum á hótelið síðdegis og skráðum okkur inn. Við fengum auðvitað uppfærslu þar líka, án þess að biðja nokkuð um slíkt, frekar en í fluginu. 4ja manna herbergi gömlum stíl, með einkasvölum og sundlaug við hendina.

Húsið og herbergin eru í frönskum stíl, eins og mjög algengt er í Víetnam. Hér verður gott að leggja sig.

Erum á leiðinni út til að smakka einn af vinsælustu réttum landsmanna, Bánh mí samlokuna.








1 ummæli:

MB23 - 23. kafli - New York og Massachusetts

28. apríl - 9. maí Las Vegas - Syracuse Flugið frá Las Vegas var mjög þægilegt og gaman að fljúga yfir fjallgarðana í Colorado, snjór í fjöl...