þriðjudagur, 21. mars 2023

MB23 - 10. kafli - Víetnam - 5. hluti

Mekong Delta héraðið

Í dag var haldið af stað kl. 8.00 og haldið af stað til suð-vesturs í átt að Mekong Delta og Mekong fljótinu.  

Fyrst var ekið í gegnum Kína hverfið í Ho Ming Shin (Saigon) þar sem er reyndar ekki að finna bestu kínversku veitingastaðina, þeir eru í miðbænum.

Við ókum síðan um Mekong héraðið sem telur 4 mismunandi svæði og þar búa alls um 20 milljónir manna. Þarna gildir víst sú regla víetnama að eignast hús, vatnabuffaló og loks giftast, raðað eftir mikilvægi.

Stoppað var í búddahofinu Vinh Tráng Pagoda, þar sem mjög stór líkneski er að finna, af glöðum búdda, liggjandi búdda og standandi búdda.  

Makong fljótið

Mekong fljótið er um 5.000 km að lengd og er það 3ja lengsta í Asíu og 12. lengsta fljót/á jarðarinnar.

Það á upptök sín í Tíbet og rennur þaðan í gegnum Kína - Myanmar - Thailand - Laos - Kambódíu og Víetnam. Hvergi er veitt meira af vatnafisk en úr þessu fljóti í heiminum. Meðaldýpt þess er um 15 metrar og þarna gætir sjávarfalla frá Suður-Kínahafi.

Á þessu svæði er að finna 4 eyjar í fljótinu; Drekaeyju, Einhyrningseyju, Fönixeyju og Skjaldbökueyju., nefndar eftir höfuðskepnum Víetnama. 

Um 3 kílómetrar eru á milli árbakkanna þar sem lengst er og mikil umferð stórra og smárra báta á fljótinu.

Við héldum út í Einhyrningseyju og skoðuðum þar hunangsrækt, fengum heimagert te og fleira góðgæti framleitt úr hunanginu. Bestir voru engifer bitarnir sem búið var að meðhöndla með hunangi; keyptum poka í nesti.

Á Einhyrningseyju búa um 6.000 manns sem starfa við landbúnað, fiskveiðar og ferðaþjónustu. Halldóra reið á vaðið við að halda á býflugnaspjaldi og Unnsteinn fékk slöngu af Python tegund um hálsinn, jeyjjj.


Mjög mikil ræktun er í eyjunni, t.d. kakóbaunir, kókos, drekaávöxtur, stjörnuávöxtur, mangó og kóríander (nokkuð fábrugðinn þeim sem við þekkjum í útliti og bragði).

Við fengum að smakka á ávöxtum eyjarinnar og te með því. Á meðan fluttu eyjaskeggjar nokkur lög, bæði eylend og erlend.


Í eyjunni er líka framleitt sælgæti úr kókoshnetum og fengum við að fylgjast með framleiðslunni og auðvitað að smakka. Við keyptum líka vörur þarna, en óvíst að eitthvað verði til er við komum heim, sorrý.

Að lokum var haldið í ferð um síki eyjarinnar á mjög mjóum bátum sem rista grunnt. Róið var upp ánna og var leiðin nokkuð löng. Á leiðinni sáum við vel vatnakókosinn sem liggur við lækinn.

Haldið var frá Einhyrningseyju yfir í Drekaeyju þar sem snæddur var málsverður, m.a. Fílseyrafiskur „Elephant ear fish“ auk 5 annarra rétta.

Halldóra lagði sig eftir matinn í ekta hengirúmi.



Endum þetta svo á ýmsum myndum sem teknar voru í dag :)

















Engin ummæli:

Skrifa ummæli

MB23 - 23. kafli - New York og Massachusetts

28. apríl - 9. maí Las Vegas - Syracuse Flugið frá Las Vegas var mjög þægilegt og gaman að fljúga yfir fjallgarðana í Colorado, snjór í fjöl...